12. nóvember 2026 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Frumvarp í samráðsgátt um breytingar á lögum um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda

{image.Description}

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi sem felur í sér breytingu á lögum um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda.

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, meðal annars í ljósi sameiginlegrar yfirlýsingar ríkisstjórnar Íslands, Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem var undirrituð þann 8. október 2026 í tengslum við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði.

Samhliða undirritun yfirlýsingarinnar kynnti ríkisstjórnin margvíslegar aðgerðir til stuðnings kjarasamningum sem hafa það meðal annars að markmiði að stuðla að efnahagslegum og félagslegum stöðugleika, tryggja uppbyggingu hagkvæms húsnæðis, tryggja réttarbætur fyrir launafólk og leigjendur og létta byrðar af atvinnulífinu.

Meðal þeirra aðgerða sem ríkisstjórnin kynnti að ráðist yrði í voru annars vegar að lagt verði fram frumvarp eigi síðan er á vorþingi 2027 sem felur í sér viðurlög við brotum á lágmarkskjörum launafólks í samræmi við kjarasamninga og hins vegar að lagt verði fram frumvarp eigi síðan en á vorþingi 2027 sem felur í sér að lágmarkskjör launafólks á íslenskum vinnumarkaði falli ekki niður vegna tómlætis.

Með frumvarpinu er lagt til að lögfest verði skylda atvinnurekanda á almennum vinnumarkaði til að greiða launamanni sérstakt févíti vegna brota á lágmarkskjörum kjarasamninga geri launamaður kröfu um slíkt, enda séu hvorki fyrir hendi réttlætanlegar ástæður fyrir vangreiðslunni né um að ræða leiðréttingu af hálfu hlutaðeigandi atvinnurekanda innan 18 daga frá því að honum berst skrifleg og rökstudd krafa launamanns eða stéttarfélags hans.

Með frumvarpinu er jafnframt lagt til að kröfur launamanna vegna leiðréttinga í þeim tilvikum þegar laun eða önnur starfskjör hafa ekki verið greidd í samræmi við kjarasamninga falli ekki niður fyrir tómlæti en fyrnist þess í stað samkvæmt almennum reglum um fyrningu.

 

Var efnið hjálplegt?