12. nóvember 2026 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Frumvarp um markvissari endurhæfingu kynnt í samráðsgátt

{image.Description}
Mynd: Hugi Ólafsson

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi sem ætlað er að stuðla að því að endurhæfing einstaklinga skili sem mestum árangri. Um er að ræða breytingar á lögum um almannatryggingar hvað varðar framkvæmd sjúkra- og endurhæfingargreiðslna.

Í frumvarpsdrögunum kemur m.a. fram að mörgum af þeim markmiðum sem stefnt var að með innleiðingu á nýju örorkulífeyriskerfi, sem tók gildi fyrir rétt rúmu ári, hafi verið náð. Jafnframt kemur fram að síðastliðin ár hafi verið lögð aukin áhersla á endurhæfingu sem skilað hafi árangri. Einstaklingar hafi í minna mæli en áður verið metnir með varanlega örorku að lokinni endurhæfingu.

Framkvæmdin hefur þó leitt í ljós að breyting hefur orðið á tímalengd endurhæfingar samhliða lengingu greiðslutímabils sjúkra- og endurhæfingargreiðslna. Þannig er meðaltímalengd endurhæfingar nú um 21,5 mánuður en hún hefur rúmlega tvöfaldast frá árinu 2017 þegar hún var tæplega 12 mánuðir.

Snemmtæk íhlutun með réttri þjónustu á réttum tíma er almennt talin vera áhrifaríkasta leiðin til að auka árangur endurhæfingar, stuðla að árangursríkri endurkomu á vinnumarkað og draga úr nýgengi örorku. Í ljósi þess er meðal annars gert ráð fyrir eftirfarandi breytingum innan kerfisins: 

  • Lagt er til að sjúkra- og endurhæfingargreiðslur verði aðskildar. Með því er gerður afdráttarlaus greinarmunur annars vegar á viðurkenndri meðferð innan heilbrigðiskerfisins (sjúkragreiðslum) og hins vegar atvinnutengdri starfsendurhæfingu (endurhæfingargreiðslum). Ekki er gert ráð fyrir breytingum á fjárhæðum greiðslnanna.

  • Lagt er til að stytta hámarkstíma greiðslnanna í þrjú  eða í 36 mánuði. Nýr 36 mánaða hámarkstími er talinn falla vel að gildandi framkvæmd þar sem meðaltímalengdin er sem fyrr segir um 21,5 mánuðir. Nýtt hámark gefur þannig svigrúm til heildstæðrar endurhæfingar á þeim tímapunkti þar sem líkur á bata eru almennt mestar.

  • Lagt er til að lögfest verði staðlað og samræmt grunnmat á vegum Tryggingastofnunar sem yrði forsenda fyrir rétti til sjúkragreiðslna eða endurhæfingargreiðslna. Matið myndi byggjast á alþjóðlegu flokkunarkerfi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um færni, fötlun og heilsu (ICF) fremur en einhliða sjúkdómsgreiningu. Með þessu er reynt að tryggja eins og unnt er að umsækjendur um umræddar greiðslur fari allir í gegnum sama ferlið við mat á rétti til greiðslna og jafnframt stuðlað að jafnræði umsækjenda á landsvísu.

  • Lagt er til að umsýsla, þ.m.t. greiðsla, sjúkradagpeninga færist frá Sjúkratryggingum til Tryggingastofnunar. Með breytingunni er stefnt að einfaldari þjónustu fyrir einstaklinga sem verða óvinnufærir af heilsufarsástæðum og launatekjur falla niður. Sjúkradagpeningum er þannig ætlað að mynda fyrsta þrepið í samfelldri þjónustu- og framfærslukeðju almannatrygginga. Með flutningnum fengi Tryggingastofnun jafnframt upplýsingar um veikindi einstaklinga fyrr en nú er sem gæti skapað tækifæri til að styðja einstakling sem fellur brott af vinnumarkaði fyrr en áður.

Hægt er að gera athugasemdir við frumvarpsdrögin til og með 19. nóvember nk.

Var efnið hjálplegt?