11. nóvember 2026 /
Sendiráð Íslands í Peking

Nýr sendiherra í Kína sækir Shanghai heim

{image.Description}
Standur Íslands á China Internatioanl Import Expo.

Sendiherra Íslands í Kína, Bergdís Ellertsdóttir, tók þátt í ferð viðskiptasendinefndar á vegum Íslandsstofu til Shanghai á dögunum. Þau fjölmörgu íslensku fyrirtæki, sem eru með starfssemi í borginni voru heimsótt, auk þess sem sendiherra heilsaði upp á þau fyrirtæki sem tóku þátt í hinni gífurlega stóru innflutningssýningu „China Internatioanl Import Expo“ eða CIIE, sem haldin er árlega. „Gaman var að sjá hversu öflug mörg þau fyrirtæki eru sem starfa í Kína, en ekki síður að finna fyrir vaxandi áhuga þeirra fyrirtækja sem tóku þátt í CIIE, að auka útflutning til Kína. Vöruútflutningurinn er að verða fjölbreyttari og beina flugið býður upp á nýja möguleika, ekki síst í ferskvöru á borð við ferskan fisk.“

Sjá nánar í frétt frá Íslandsstofu:
https://www.islandsstofa.is/frettir/islensk-fyrirtaeki-saekja-fram-a-kinverskum-markadi

Var efnið hjálplegt?