Fræðsluefni - námskeið

Grunnnámskeið

Almenn námskeið eru á myndbandsformi og er æskilegt að allir opinberir starfsmenn horfi á áður en gervigreindarlausnir eru notaðar. Hér er horft til opinna gervigreindarlausna sem keyra ekki á sérstökum leyfum.

Stofnanir sem eru með eigin fræðslukerfi geta óskað eftir efninu til sín. Ef stofnanir eru ekki með eigin fræðsluvef geta þær nálgast þau í gegnum Fjársýsluskólann með því að setja sig samband við Fjársýsluna.

Starfsmönnum er bent á að hafa samband við mannauðs- og fræðslustjóra sinnar stofnunar til að fá aðgang að þessum námskeiðum.

Fræðslumyndbönd.

  • Kynning á námskeiðunum? (1 mín)
  • Hvað er Copilot Chat? (6,5 mín)
  • Öryggi og gögnin þín. (5 mín)
  • Hvernig skrifum við góð fyrirmæli? (5 mín)
  • Gagnrýnin notkun. (4 mín)
  • Hagnýt notkun (9 mín)
  • Copilot sem hluti af vinnuumhvefi (10.40)

Hlutverkamiðuð námskeið

Aðra og þriðju vikuna í nóvember hefjast svokölluð hlutverkamiðuð námskeið og eru ætluð ríkisstarfsmönnum sem eru þegar komin með Copilot í sitt vinnuumhverfi. Um er að ræða sex tegundir námskeiða sem fara fram í húsakynnum Starfsmenntar í Skipholti. Námskeiðin fara öll yfir ákveðna grunnnotkun Copilot ásamt því að rýna sérstaklega verkefni sem eru gagnleg hverju hlutverki fyrir sig. Hvert námskeið er um tveir tímar. Sem dæmi þá geta lögfræðingar þvert á kerfið skráð sig á námskeið ætlað lögfræðingum og fara þá á dýptina í þeim málaflokki o.s.frv.

Þau hlutverk sem verða tekin fyrir að þessu sinni eru ætluð:

  • Fjármálasérfræðingum: Námskeiðið er ætlað starfsfólki sem sinnir fjármálum, rekstri, greiningum, áætlanagerð og upplýsingagjöf til stjórnenda. Skráning á námskeið
  • Kennurum: Námskeiðið er ætlað kennurum við framhaldsskóla og háskóla sem vilja nýta Copilot til að einfalda dagleg verkefni, þróa kennsluhætti og skapa meira svigrúm fyrir kennslu og samskipti við nemendur. Skráning á námskeið
  • Lög og reglur: Fyrir ríkisstarfsmenn sem vinnur með lög, reglur, samninga og skjalagerð. Skráning á námskeið
  • Mannauðssérfræðingum: Námskeiðið er ætlað ríkisstarfsfólki sem sinnir mannauðsmálum, ráðningum, fræðslu og starfsþróun. Skráning á námskeið
  • Sérfræðingum: Námskeiðið er ætlað sérfræðingum á öllum sviðum ríkisins sem vinna með upplýsingar, skjöl, fundi og samskipti. Skráning á námskeið
  • Stjórnendum: Námskeiðið er ætlað stjórnendum á öllum sviðum ríkisins sem vilja nýta Copilot til að einfalda dagleg verkefni og styðja við stjórnendastarfið. Skráning á námskeið

 

Var efnið hjálplegt?