Nýr sendiherra í Kína sækir Shanghai heim
11 nóvember 2026
Sendiherra Íslands í Kína, Bergdís Ellertsdóttir, tók þátt í ferð viðskiptasendinefndar á vegum Íslandsstofu til Shanghai á dögunum.
Hlutverk sendiráðsins er margþætt en snýr einkum að því að gæta hagsmuna Íslands í Kína og öðrum umdæmisríkjum ásamt því að þróa og efla enn frekar samskipti ríkjanna. Auk Kína eru Mongólía og Víetnam í umdæmi sendiráðsins.
Sendiráð Íslands í Peking var opnað árið 1995.