Gott að eldast
Góð heilsa er dýrmæt á öllum aldri. Með því að rækta líkama, huga og tengsl við aðra stuðlum við að betri líðan. Það er mikilvægt að gefa sér tíma fyrir hreyfingu, samverustundir og hvers kyns hugarleikfimi sem auðveldar okkur að njóta alls þess sem skiptir okkur máli.
Deildu með okkur tækifærum
Veist þú um eða stendur þú fyrir einhverjum hóp/verkefni/námskeiði/þjónustu þar sem boðið er upp á heilsueflingu eða tengsl fyrir eldra fólk? Fylltu út formið og láttu okkur vita svo getum deilt víðar.
- Gott samfélag er samfélag þar sem gott er að eldast - upplýsingagátt fyrir áhugaverð tækifæri fyrir eldra fólk
Því að gott samfélag er samfélag þar sem gott er að eldast.
Verkefnið Gott að eldast
Íslenska þjóðin er að eldast. Á næstu tíu árum mun fólki sem er yfir áttrætt fjölga um 44%.
En það er ekki öll sagan. Eldra fólk er virkara, hraustara og hefur meira fram að færa en nokkru sinni fyrr.
Í þessari þróun felast ekki aðeins áskoranir heldur líka fjölmörg tækifæri til að byggja upp samfélag þar sem fólk getur notið lífsgæða, tekið virkan þátt og blómstrað á öllum æviskeiðum.
Til þess þurfum við að hugsa hlutina upp á nýtt og þróa þjónustu í takt við breytta aldurssamsetningu þjóðarinnar, brjóta niður hindranir og skapa aðstæður sem mæta fjölbreyttum þörfum og óskum eldra fólks.
Sú vegferð er þegar hafin undir yfirskriftinni Gott að eldast. Með því verkefni taka stjórnvöld nýja stefnu í málefnum eldra fólks, þar sem tækifæri, lífsgæði og virk þátttaka eru í forgrunni.
Fléttum saman þjónustuna
Meginþungi aðgerða liggur í þróunarverkefnum sem ganga út á að:
- finna góðar lausnir sem samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk
- flétta saman þá þætti sem ríkið sér annars vegar um og hins vegar sveitarfélögin
Sömuleiðis eru aðgerðir í gangi sem hverfast um:
- heilbrigða öldrun með alhliða heilsueflingu
- sveigjanlega þjónustu
- bættan aðgang að ráðgjöf og upplýsingum um þjónustu fyrir eldra fólk
Allar aðgerðir miða að því að tryggja virkara og heilsuhraustara eldra fólki þjónustu sem stuðlar að því að sem flest þeirra séu þátttakendur í samfélaginu – sem allra lengst.
Sögur úr sex sveitarfélögum þar sem þróunarverkefni eru í fullum gangi
Mosfellsbær
Dalvík
Árborg
Hveragerði
Hvammstangi
Vesturbyggð
Heimaþjónusta við eldra fólk í tölum
Á gagnvirku mælaborði eru upplýsingar um þjónustu við eldra fólk í heimahúsum. Tilgangur þess er að veita betri yfirsýn yfir félags- og heilbrigðisþjónustu sem veitt er af hálfu ríkis og sveitarfélaga.
Opna mælaborðið í nýjum glugga
Tölulegar upplýsingar um virði eldra fólks
KPMG hefur sett upp gagnvirkt mælaborð sem inniheldur tölulegar upplýsingar og útreikninga. Kostnaðar- og ábatagreiningin sýnir með skýrum hætti að eldra fólk er virði en ekki byrði.
Nánar um verkefnið
Verkefnið Gott að eldast er á ábyrgð félags- og húsnæðismálaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis og er unnið í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga og Landssamband eldri borgara, auk fjölda annarra hagaðila.
Verkefnastjórn var skipuð sumarið 2022 og hefur unnið að mótun ofangreindrar aðgerðaáætlunar.
Eldra fólk leggur mikið til samfélagsins
Eldra fólk leggur mikið til samfélagsins og mikilvægt er að stuðla að auknu heilbrigði þessa hóps.
Þetta kom fram á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum þar sem aðgerðaáætlunin var kynnt sem og ítarleg greining.
Öldrunarmál
Var efnið hjálplegt?