25 janúar 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Ráðast í greiningu á þörfum fatlaðs fólks fyrir máltæknilausnir
Menningar- og viðskiptaráðuneytið hefur gert samning við ÖBÍ réttindasamtök og greiningarfyrirtækið Sjá viðmótsprófanir um að ráðast í greiningu á þörfum fatlaðs fólks fyrir vörur og hugbúnað sem byggja á máltækni. Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, undirritaði samninginn í dag ásamt Ölmu Ýr Ingólfsdóttur, formanni ÖBÍ, og Jóhönnu Símonardóttur, framkvæmdastjóra Sjá.