28 september 2016Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið
Tvíhliða samningur Íslands og Bandaríkjanna um almannatryggingar
Tekist hefur tvíhliða samningur um almannatryggingar milli Íslands og Bandaríkjanna. Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra og Robert Cushman Barber, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi undirrituðu samninginn fyrir hönd ríkjanna í velferðarráðuneytinu í gær.