07 apríl 2016Forsætisráðuneytið
Ráðuneyti Sigurðar Inga Jóhannssonar tekur við
Á fundi ríkisráðs á Bessastöðum í dag féllst forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, á tillögu forsætisráðherra, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, um að veita ráðuneyti hans lausn frá störfum. Á öðrum fundi ríkisráðs féllst forseti Íslands á tillögu Sigurðar Inga Jóhannssonar um skipun fyrsta ráðuneytis hans og gaf út úrskurð um skiptingu starfa ráðherra.