24 mars 2022Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið
Forsætisráðherra tók þátt í leiðtogafundi NATO
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sat í dag leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Brussel, ásamt Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra. Tilefni fundarins var að ræða innrás Rússlands í Úkraínu og viðbrögð NATO í bráð og lengd. Eining var rætt um áframhaldandi stuðning við Úkraínu en Volodomír Zelenskí, forseti Úkraínu, ávarpaði fundinn í gegnum fjarfundabúnað.