03 október 2014Innviðaráðuneytið
Ferðaþjónusta,
samgöngur og sóknaráætlanir meðal efnis á aðalfundi Eyþings
Ört vaxandi ferðaþjónusta, áhrif hennar, samgöngur, sóknaráætlanir og byggðaþróun voru meðal umræðuefna á aðalfundi Eyþings, samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, sem nú stendur að Narfastöðum í Reykjadal. Einnig var kynnt áfangaskýrsla um almenningssamgöngur og á morgun verða almenn aðalfundarstörf.