18 október 2013Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið
Félagsvísar uppfærðir
og endurútgefnir
Félagsvísar, sem eru safn tölulegra upplýsinga um velferð, efnahags- og félagslega þætti og heilsufar íbúa í landinu, hafa verið uppfærðir og birtir í skýrslu. Vísarnir draga upp mynd af þróun samfélagsins og lífsgæðum landsmanna og auðvelda stjórnvöldum og almenningi að fylgjast með þjóðfélagsþróun og samfélagsbreytingum.