16 september 2013Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Verðlaunahafar á Degi íslenskrar náttúru
Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, veitti í dag í tilefni af Degi íslenskrar náttúru, Páli Steingrímssyni, kvikmyndagerðarmanni, fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Við sama tækifæri veitti hann Vigdísi Finnbogadóttur, Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti.