17 mars 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Einföldun á regluverki í þágu smávirkjana
Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur skrifað undir reglugerð sem ætlað er að bæta rekstrarumhverfi smávirkjana. Reglugerðin er hluti af tillögum starfshóps sem ráðherra orkumála skipaði árið 2020 með það að markmiði að bæta starfsumhverfi smávirkjana, með sérstakri áherslu á gjaldtöku vegna tenginga þeirra við dreifikerfi raforku.