09 janúar 2015Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Ráðherra kynnir sér stofnanir ráðuneytisins
Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, heimsótti í vikunni fimm af stofnunum ráðuneytisins; Umhverfisstofnun, Úrvinnslusjóð, Náttúrufræðistofnun Íslands, Veðurstofu Íslands og Skipulagsstofnun. Í heimsóknunum kynnti ráðherra sér starfsemi stofnananna og ræddi við stjórnendur og starfsfólk þeirra.