25 nóvember 2011Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið
Styrkir til gæðaverkefna árið 2011
Velferðarráðuneytið auglýsir styrki vegna gæðaverkefna árið 2011. Að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á verkefni tengd samþættingu heilbrigðis- og félagsþjónustu, s.s. verkefni sem stuðla að umbótastarfi, nýbreytni eða auknum gæðum þjónustunnar. Önnur gæðaverkefni koma einnig til álita.