27 febrúar 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Samið um stuðning við verkefni Glóar er varða fötluð börn og ungmenni
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, undirrituðu í dag samning við Gló um stuðning við fötluð börn og ungmenni í sumar. Markmiðið er að draga úr félagslegri einangrun fatlaðra barna og ungmenna og styðja við fjölskyldur þeirra.