28 júlí 2015Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið
Ánægja og vinátta í keppninni
Þessa dagana, 25. júlí-3. ágúst, fara fram Alþjóðasumarleikar Special Olympics í Los Angeles, en þeir eru haldnir fjórða hvert ár. Félags- og húsnæðismálaráðherra, Eygló Harðardóttir, er heiðursgestur á leikunum auk Lárusar Blöndal, forseta Íþrótta- og Ólympíusambandsins og Helgu Steinunnar Guðmundsdóttur fulltrúa Samherja, sem er aðalstyrktaraðili Special Olympics á Íslandi auk Íslandsbanka.