12 desember 2011Mennta- og barnamálaráðuneytið
Úttekt
á íslenskukennslu í átta framhaldsskólum
Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur látið gera úttekt á íslenskukennslu í átta framhaldsskólum. Markmið úttektarinnar var að afla upplýsinga um framkvæmd íslenskukennslu í framhaldsskólum með tilliti til aðalnámskrár, námsefnis, námsgagna, menntunar kennara, árangurs nemenda, stöðu námsgreinarinnar og viðhorfa til hennar. Skýrslu um úttektina má finna á vef ráðuneytisins.