27 nóvember 2017Dómsmálaráðuneytið
Opinn fundur um stöðu mannréttinda á Íslandi 30. nóvember
Stýrihópur stjórnarráðsins um mannréttindi stendur fyrir opnum fundi í Veröld, Húsi Vigdísar Finnbogadóttur, 30. nóvember næstkomandi frá kl. 14-16. Á fundinum verða niðurstöður UPR-ferlisins (Universal Periodic Review) kynntar auk almennrar umræðu um störf stýrihópsins, stöðu mannréttinda á Íslandi og næstu skref.