04 desember 2014Dómsmálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið
Nýr innanríkisráðherra tekur við embætti
Nýr innanríkisráðherra, Ólöf Nordal, tók við ráðherraembætti á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í dag. Hanna Birna Kristjánsdóttir, fráfarandi innanríkisráðherra, óskaði eftir lausn frá embætti 21. nóvember síðastliðinn og tilkynnti formaður Sjálfstæðisflokksins um nýjan ráðherra á fundi þingflokksins í morgun.