21 apríl 2017Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið
Tæpum 108 milljónum úthlutað til velferðarstyrkja í lok vetrar
Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur úthlutað velferðarstyrkjum af safnliðum fjárlaga árið 2017. Styrk hlutu 54 félagasamtök til fjölbreyttra verkefna, alls tæpar 108 milljónir króna. Afhending styrkjanna fór fram í Hannesarholti síðasta vetrardag.